Sumarið er komið!!
08.09.2006 00:56:06 / kristin

heartless bi...

Frá upphafi þessa skólaárs hefur mér alls ekki litist á ritgerðarkennara minn. Hún talar alltaf niður til okkar og hefur bara almennt verið leiðinlegur kennari með allt of strangar reglur miðað við háskóla. Ein af reglunum hennar er það að ef þú missir af meira en 3 tímum yfir önnina fellur hún þig...sama hvaða ástæða það er....
Og hún greinilega meinti það þegar hún sagði að hún gæfi ekki undanþágur.....

Ég var að tala við stelpu sem er með mér í þessum bekk í dag og hún sagði mér að hún væri með hvítblæði. Þessi litla sæta stelpa sagði mér að hún fór upp að kennaranum eftir einn tímann til að segja kennaranum að hún myndi pottþétt missa af meira en þrem tímum því að hún væri með hvítblæði og myndi vera mikið á spítalanum. Stelpan lofaði að skila öllu á réttum tíma og allt það.....en því miður gæti hún ekki alltaf komið.......
Og kennarinn svaraði einfaldlega því að hún gæfi ekki undanþágur og þar sem að hún (stelpan) liti ágætlega út, gæti hún alveg mætt þótt henni liði illa suma daga:!::!::!:....Og kennarinn sagði að hún myndi fella hana ef hún missir af meira en þrem tímum yfir önnina:!:.......Þá tók stelpan af sér hárkolluna og virkilega bað kennarann að gera undanþágu því hún gæti einfaldlega alls ekki komið suma daga.
En kennarinn hélt sínu striki og sagði að hún gæfi engar undanþágur.....

ÉG Á EKKI ORÐ.........Og er annsi hrædd um að ég eigi eftir að snappa á þennan kennara einhverndaginn þó hún hafi ekki gert mér neitt.....Og það er ekki bara þetta sem gerir hana vonda því ég hef tekið eftir því að hún talar niður til dökka fólksins jafnvel meira en hún talar niður til okkar hinna.
Hún þarf greinilega sjálf á hjálp að halda því ég hélt að enginn hefði það í sér að vera svona vondur..



» 5 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 03:09:54 / kristin

Ökklinn

Er búin að fara til læknis hérna, bæði sérfræðings og læknisins í liðinu. Það sem þeir sjá er að það er bein þarna niðri sem er stærra en það á að vera og það gæti verið að triggera verkinn í ökklanum á mér. En þar sem ég er búin að hvíla svo lengi núna gæti verið að ég sé bara hreinlega orðin góð og að þetta bein sem er of stórt, sé ekkert að trufla mig svo mikið. Þess vegna vilja þeir til öryggis að ég taki vel á því næstu tvær vikurnar og geri það sem yfirleitt meiddi mig mest (s.s. hoppa). Ef verkurinn kemur aftur ætla þeir að að skoða þetta betur og ef verkurinn kemur ekki aftur......þá....JIBBÍ!!!!.....:haha::haha::haha:

Annars gengur skólinn bara vel eins og er......er búin með næstum 2 vikur og það er auðvitað allt komið á fullt.
Ég er að taka tvo sálfræðitíma (annar er í raun og veru tölfræðitími þar sem ég læri m.a. á forrit sem heitir SPSS og hinn tíminn kallast "learning"......svo er ég að taka enskutíma, eða rétt er að segja ritgerðartíma sem er ekkert svo spennandi en engu að síður mikilvægur. Annað fag sem ég verð að taka er sögutími sem verður ekki svo spennandi en heldur alls ekkert svo slæmur. Svo er ég að taka einn jarðfræðitíma sem fókusar á náttúruhamfarir...s.s fimm fög og ég hlakka að sjálfsögðu mest til sálfræðitímanna...en kvíði mest fyrir sögutímanum og ritgerðatímanum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 07:48:36 / kristin

svindlari

Ég er að legja hús með 3 öðrum stelpum í frjálsíþróttaliðinu. Mjög skemmtilegar stelpur og gaman að búa með þeim (fyrir utan stelpuna sem var svo mikill draslari...en er flutt út)......Húsið sem við búum í er vægast sagt mjög "shitty"....Engin loftkæling, veggirnir með sprungum í þeim, Guð einn veit hvað býr í teppinu sem er á gólfinu, pöddur skríða úr loftinu og inn í húsið, enginn reykskinjari, öll rör ofl er er riðgað...og ég gæti talið upp miklu fleira....
Eina sem heldur okkur hérna er það að stangarstökksþjálfarinn í liðinu er að leigja okkur húsið fyrir góðan díl....Eða það sem við héldum að væri góður díll :/......Hann ákvað  samt nýlega að hækka leiguna um slatta fyrir stuttu og gefur enga almennilega ástæðu......Og nú er leigan komin í nákvæmlega það sama og fólk í kringum okkur er að borga fyrir miiiiklu betra og hreinna hús

ohh...æ..ég nenni ekki að kvarta yfir þessu...Aðal pointið í þessu átti að vera að ég er þreytt á þessu og ætla að flytja héðan amk áður en næsta skólaár byrjar



» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 16:26:38 / kristin

Fréttir

Jii...Það er allt búið að koma í veg fyrir það að ég skrifi hérna inn, en það er löng saga....ég er komin á netið núna og get skrifað.

Það er svo rooosalega margt búið að gerast undanfarið að ég kemst ekki yfir það allt saman. Mamma mín og Steinþór bróðir minn voru í heimsókn og eru nýlega farin.....Við höfðum það alveg rosalega gott og gerðum helling skemmtilegt, m.a. í San Fran áður en við komum til San Diego fórum við í hið illræmda Alcatraz og í vínsmökkunartúr um sveitirnar þarna.....mjög gaman....og svo gerðum við náttúrulega helling í San Diego, fórum á ströndina, keyrðum til LA, keyrðum til Mexico, fórum í Wild Animal Park, slöppuðum af (tja...ég er nátturulega byrjuð í skólanum svo að þau hafa sennilega náð að slappa aðeins meira af en ég ;)...En það var gaman að hafa þau hérna )

Núna er ég að flytja í nýtt herbergi í sama húsi. Strærra herbergi með sérbaðherbergi og fullt af plássi :D.....En sú sem bjó þarna á undan mér skildi heldur betur óóógeðslega eftir sig, viðbjóðslega skítugt alltsaman og fullt af drasli og baðherbergið...ojjjts....:S...Já og svo var herbergið dökkblátt, og það er EKKI gaman að mála yfir svoleiðis, það hófst þó, og nú er herbergið fallega gult :).

Ég er búin að tala við læknirinn hérna útaf ökklanum á mér en hann sagði sem minnst því hann vill skoða segulómun-myndirnar og röntgen myndirnar sjálfur...svo að ég á tíma hjá honum aftur á þriðjudaginn og þá verður hann vonandi búinn að skoða þetta :).

En ég læt herya í mér fljótlega aftur :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 18:05:12 / kristin

Halló

Ég held að það sé komin tími til að ég láti vita af mér......

Ég er semsagt komin til San Diego og er strax komin með tíma hjá lækni til að fara yfir meiðslin mín....En það kom í ljós ekki löngu áður en ég lagði af stað til San Diego að ég er með auka bein í ökklanum, akkurat undir sininni sem er sködduð....En ég veit ekkert hvað á að gera....en fer til læknis á þriðjudaginn

En bikar er í dag og á morgun og ég segi ekki annað en

Áfram ÍR!!!!!!!!!!!!!!

Hugurinn á mér er allur með ykkur þessa tvo daga og ég vildi óska þess að ég væri þarna!

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 17:47:18 / kristin

Fer eftir viku

Ætli það sé kominn tími á það að maður skrifi hérna inn:$....Ég hafði aldrei ætlað mér að skrifa hérna inn í sumar en nú fer að koma að því að ég fari út aftur svo að það fer að kvikna á þessu bloggi  á næstu vikum....Kannski ekki almennilega fyrr en í september þó.

Margt hefur drifið mína daga undanfarið, og í allt sumar. Ég fór reyndar ekki nema í tvær útileigur þetta sumarið og báðar í rigningarveðri...hressandi!...Reyndar var það í bæði skiptin með mjög skemmtilegum félgasskap svo að ég kvarta ekkert yfir því þó að við höfum húkað inni í tjalda mest allan tímann. Svo hef ég verið dugleg að hitta vini mína við hin ýmsu tækifæri og á ég eftir að sakna þeirra/ykkar ásamt fjölskyldunni þegar ég fer út aftur.

Undanfarna viku hef ég legið eins og skata fyrir framan sjónvarpið...Ég er hætt að vinna og því ekkert að gera nema horfa á EM:haha:.....Æðislegt alveg. Ég verð samt að viðurkenna það að þó það sé notalegt að kúra með teppi fyrir framan sjónvarpið, þá væri ég mjöööög til í að vera í Gautaborg að keppa!!....
En það er EM U23 á næsta ári og ég er búin að ná lágmarki á það mót svo að ég hlakka bara til þess að fara á það ef maður verður í góðu standi :)

Af meðslunum er það að frétta að hnéð á mér er komið í gott stand en ökklinn er ennþá pínu spurningamerki....Bólgur og breytingar í tveim sinum sem eru þarna einhverstaðar við hliðina á hásin og sennilega þarf ég bara aðeins meiri meðferð á þetta og styrkingaræfingar og þá verð ég góð :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 21:06:58 / kristin

Úff

Ég á ekki orð yfir þessu!!!....Ítalar heimsmeistarar eftir ekkert smá spennandi og atburðaríkan leik 8|

Zidane var í uppáhaldi hjá mér fyrir leikinn. Það er mjög leiðinlegt fyrir hann að enda ferilinn svona og ég vona fyrir hans hönd að fólk muni eftir honum sem einum besta knattspyrnumanni í heimi en ekki fyrir það sem hann gerði í dag! Engu að síður mjög óíþróttamannlegt af honum að gera þetta.

Já og svo er ég svo mikill auli þegar ég er að horfa á svona því þó að ég samgleðst auðvitað þeim sem vinna, þá vorkenni ég þeim sem tapa svo rosalega mikið, því þeir voru búnir að vinna svo rosalega vel greyjin:$En það getur víst bara verið einn sigurvegari


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 13:11:49 / kristin

Meiðsli

Ég nenni greinilega ekki mikið að skrifa hérna inn :$....

En það er lítið í fréttum nema kannski það að ég fékk út úr myndatökunni á hnénu á mér sem ég fór í fyrir stuttu.....og það kom í ljós að þetta hafði semsagt bara verið bólgur í sinum....s.s. ekki eins alvarlegt og það hefði getað verið..... :D Við héldum bara að þetta væri eithvað verra því ég var búin að vera með þetta lengi en engin bólgueyðandi virkaði...Og þetta var orðið gersamlega óþolanlegt undir lokin þarna úti (en það er kannski ekkert að marka þegar maður minkar ekki álagið ;))

Ég má semsagt fara á stað að æfa núna en þarf að fara rólega svona í fyrstu segja þeir. Það er samt spurning hvað ég geri í sambandi við helv.. ökklann á mér sem er vesenið endalausa....Ég veit ekki hvort ég hafa eithvað skrifað um hann hérna á síðunni en það hefur verið þannig í nokkur ár núna að í hvert skipti sem ég hoppa fæ ég sting og því meira sem ég hoppa því óþolanlegra verður það og ég bólgna upp stundum bara út af álagi :|...Þó álagið sé ekki mikið....Ég get samt hlaupið án þess að finna til. Ég hef alltaf haldið að þetta lagist því enginn virðist geta sagt mér nákvæmlega hvað er að mér :/....Og læknar hafa sagt að smá hvíld frá hoppum lagi þetta bara....En svo virðist ekki vera....Því í allan fyrravetur hoppaði ég ekki neitt á æfingum í  og keppti bara í stökkum þegar ég fór í þraut......Og það var næstum því eins núna í vetur en ég byrjaði að æfa langstökkið en svo byrjaði ég alltaf að finna til svo að við (ég og þjálfarinn) ákváðum að hafa sömu tækni á þessu og undanfarin 3 ár.....sem er að sleppa þvi að æfa hoppin en keppa svo bara í þeim þegar ég er að keppa í þraut:$.....

Þetta er orðið mjööög þreytandi vandamál því það er ekki hægt að æfa þraut nema upp að vissu marki svona!!......Læknirinn úti sagði mér að hvíla allt álag á ökklann í amk 12 vikur því þetta er orðið svona langþráð vandamál og það er vitað að þetta er eithvað í beinunum á mér.....Ég hef aldrei gefið þessu 100% hvíld (þ.e. þó ég hafi hvílt hoppin á æfingu þá hef ég aldrei hætt að hlaupai)...En satt best að segja veit ég ekki hvort hvíldin dugi á þetta.....
Ég er samt núna í ströngum æfingum til að styrkja ökklana á mér og ég held að það eigi eftir að hjálpa helling

Ég ætla samt að fara í myndaökur á ökklanum á mér og halda áfram að reyna að fá botn í þetta mál....Ekki fyrr en ég er búin að fá út úr því veit ég hvernig sumarið verður í framhaldinu!


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 22:47:07 / kristin

slys og Egilsstaðir

Ég skellti mér til Egilsstaða um helgina í smá heimsókn til ömmu og afa. Það var mjög notalegt að gera ekkert nema sofa og borða og eyða smá tíma með þeim.....Báðar ömmur mínar búa þarna fyrir austan og eru jafn myndalegar í matargerðinni og bakstrinum þannig að mér finnst ég eiginlega vera orðin kringlótt eftir þessa veru mínu fyrir austan:$....En ég er alveg endurnærð eftir þessa ferð!!!

Áður en ég fór austur lenti ég í þvílíkum árekstri og er heppin að vera ekki meira meidd!.....En ég var í hjólreiðatúr og það keyrði fyrir mig bíll sem ég sá ekki fyrr en allt of seint. Ég reyndi að bremsa með þeim afleiðingum að ég skaust fram fyrir mig af hjólinu og beint á bílinn....með hausinn á undan:!:....Ég fékk að sjálfsögðu sjokk en karlinn sem keyrði á mig fékk ennþá meira sjokk og vissi ekki hvað hann átti að gera þegar ég stóð beint á lappir og ætlaði að drífa mig heim....haha....Hann vildi endilega keyra mig á upp á slysadeild en ég sagði að það væri óþarfi og dreif mig heim.....En þegar ég kom heim fór ég að finna fyrir ýmsum eymslum hér og þar í líkamanum og er ennþá vel marin og rispuð hér og þar!!!......En ég sé það núna að ég er mjöög heppin að ekki fór ver!


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 18:50:41 / kristin

komin heim

Ég er loksins komin heim.....Ég er strax byrjuð að vinna og líst bara vel á.....Ég er ekkert búin að æfa síðan ég kom heim (ekkert sem telur allavega...bara smá lyftingar og sund), en ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við mig þegar ég get ekki æft.....Í gær ætlaði ég Höllina til að taka svaka spinningæfingu en þegar ég kom sá ég að það var ekki eitt einasta hjól þar til að taka almennilega æfingu, þannig að ég endaði með því að lyfta bara létt:S....Reynir ætlar að vera svo góður við mig að lána mér hjólið sitt á næstunni svo að ég geti farið að hreyfa mig eithvað almennilega....svo er alveg spurning hvort ég vakni snemma í fyrramálið og hlaupi smá í sundi áður en ég fer í vinnuna.

En það er óskaplega gott að vera komin heim (fyrir utan kuldann;)) og gaman að hitta alla aftur :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 21:11:42 / kristin

Komin hálfa leiðina heim

Þá er ég komin hálfa leiðina heim.....Ég er þessa stundina að láta mér leiðast á flugvellinum í Minneapolis...:S.....

Í gær var semsagt síðasti dagurinn minn í San Diego þessa önnina og við Kristen (hin þrautarstelpan í liðinu) ákváðum að taka létta æfingu um morguninn og skella okkur svo á ströndina!......8)

Við náðum að slappa helling af ásamt því að kasta bolta og leika okkur í sjónum og öldunum með littlu krökkunum :D.....Ég get ekki líst því hvað mér finnst gaman á ströndinni og ég veit ekki af hverju ég gerði ekki meira af því í vetur....það tekur ekki nema 15 - 20mín að keyra frá húsinu mínu og á ströndina :)
En hinu megin á ströndinni var eithvað MTV sjónvarpsprógram í gangi og jiii hvað fólk hérna verður brjálað þegar það veit að það á séns á að komast í sjónvarpið!!..... Allt frá þrettán og upp í þrítugar stelpur hegðuðu sér eins og vitleysingar í kringum sjónvarpsfólkið til að reyna að komast í sjónvarpið....haha!....
Ég og Kristen vorum fljótar að forða okkur yfir á hinn endann á ströndinni.

En ég er farin að hlakka til að koma heim og hitta alla :)....
sjáumst á morgun :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 00:32:29 / kristin

San Diego

Það er farið að styttast í að maður komi heim!!....Ég ætla ekki að ljúga að ykkur en það er freistandi að vera aðeins lengur í San Diego í fríi þó að ég sakni auðvitað allra heima og hlakka til að koma heim. En ég á flug á föstudaginn og ætti að vera komin heim á laugardagsmorgun.:D

Fyrir þá sem vilja ná í mig verður gsm númerið mitt ennþá : 6963028 :)

Ég talaði við doksa í dag og hann sagði mér að ég ætti að verða alveg góð í hnénu með aðeins meiri hvíld svo að þetta er ekki eins alvarlegt og þetta leit út fyrir í fyrstu:haha:
En þau ætla þrátt fyrir það ekki að senda mig á Nationals (Bandaríska háskólameistaramótið) þó ég hafi náð lágmarki á það:whut:.....En það er reyndar alveg rétt hjá þeim að ég er meidd og ætti ekki að halda áfram að hlaupa á þessu (hvorki hnénu né ökklanum) og verð að gefa þessu færi á að læknast 100%

En það er búið að vera rosalega gaman hérna í San Diego og ég er ekkert smá fegin því að ég skuli hafa valið að koma hingað :D Umhverfið er að sjáflsögðu æðislegt og svo eru allir bara mjög fínir svo að mér líður mjög vel hérna.

Hérna kemur linkur inn á almbum sem þjálfarinn minn setti saman af þessari önn...myndir af mér og fleiri stelpum úr liðinu (og ef þið klikkið á "kristinbirna" efst í horninu vinstra megin geti þið fundið fleiri myndir):

http://s65.photobucket.com/albums/h231/kristinbirna/Mike/?start=0

Á morgun er semsagt síðasti dagurinn minn hérna þessa önnina og ég held að ég skelli mér bara á ströndina8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 06:03:28 / kristin

Sumarið í San Diego

Það er margt búið að gerast undanfarna daga þó ég hafi nær ekkert fengið að æfa:cry:.....Ég hef verið að laumast inn í lyftingarsalinn en þau vilja helst ekki sjá mig þar, Sérstaklega ekki á hjólinu.:$

En sumarið í San Diego ekkert smá SKEMMTILEGT!!!....Ég er búin að hafa nóg fyrir stafni þó ég hafi ekki verið að keppa.......Í gær var t.d. Memorial Day hérna í Bandaríkjunum en það er frídagur til að minnast hermanna sem létust í stríðinu (held ég)...
Við skelltum okkur á ströndina í La Jolla sem er mjög fín strönd og þetta var minn fyrsti "alvöru" strandardagur síðan ég kom til San Diego, þar sem ég bara lá í sólinni og synti í sjónum til skiptist!.... Mjög næs8)
Bergur er í svo harcore (miklum) æfingum að hann ákvað að halda sér bara heima. Hann skellti sér reyndar við sundlaugina hjá vinkonu minni á milli æfinga og ég held að hann geti ekki kvartað yfir því að liggja við bakkann á lauginni með sætum stelpum ;)

Í dag skelltum við okkur svo í Magic Mountain (6 Flags) sem er rússíbanagarður....og ji hvað ég var hrædd í þessum rússíbönum!!!.....haha....Ég er svo mikil hæna....En ég er farin að finna fyrir því meira og  meira hvað ég er rosalega lofthrædd!....Ég lét mig samt auðvitað hafa það og skellti mér í rússíbanana með þeim og það var auðvitað hrika stuð!! Eftir Magic Mountain keyrðum við svo Berg á LAX (flugvöllinn í Los Angeles) og hann ætti núna að vera á leiðinni til San Fransisco til að hitta Jónas.

Á morgun er ég svo að fara að hitta læknirinn aftur útaf hnénu og þá kemur í ljós hvað gerist með mig og hvenær ég kem heim.....

Hérna koma nokkrar myndir af öllu gamaninu:

Ég og Kristen á ströndinni:
http://i65.photobucket.com/albums/h231/kristinbirna/Magic%20Mountain%20og%20fleria%20skemmtilegt/lfileti009.jpg

Ég og Bergur að bíða í (2ja klstunda röð) fyrir einn af  rússíbönunum

http://i65.photobucket.com/albums/h231/kristinbirna/Magic%20Mountain%20og%20fleria%20skemmtilegt/lfileti021.jpg

Ég Bergur og Kristen í einum hrikalegum:

http://i65.photobucket.com/albums/h231/kristinbirna/Magic%20Mountain%20og%20fleria%20skemmtilegt/lfileti028.jpg

Ég og Kristen ringlaðar eftir þessa ferð:

http://i65.photobucket.com/albums/h231/kristinbirna/Magic%20Mountain%20og%20fleria%20skemmtilegt/lfileti026.jpg


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 06:54:51 / kristin

Laus við bílinn

Þá er ég loksins laus við bíldrusluna. En eftir að hafa reynt að finna einhvern til að kaupa hana í svolítinn tíma (en bíllinn er í slæmu ástandi, gírkassinn er ónýtur og púströrið er laust og svo er eithvað fleira að sem ég veit ekki hvað er)  ákvað ég að gefa hann til góðgerðamála. Ég þurfti ekkert að gera nema hringja eitt símtal og þau komu og sóttu bílinn. Nú getur allavega einhver notið smá góðs af þessari druslu!!.. :D

Annars ætlum við Bergur að skella okkur á ströndina á morgun ef veður leyfir og prófa brimbretti!!....Ég er ekki viss um að ég geti farið á brimbretti reyndar útaf hnénu...En Bergur verður að prófa þetta áður en hann fer heim8). Ég græt það ekkert að slappa af á ströndinni á meðan


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17