Ég er loksins komin heim.....Ég er strax byrjuð að vinna og líst
bara vel á.....Ég er ekkert búin að æfa síðan ég kom heim (ekkert
sem telur allavega...bara smá lyftingar og sund), en ég veit ekki
alveg hvað ég á að gera við mig þegar ég get ekki æft.....Í
gær ætlaði ég Höllina til að taka svaka spinningæfingu en
þegar ég kom sá ég að það var ekki eitt einasta hjól þar til að
taka almennilega æfingu, þannig að ég endaði með því að lyfta bara
létt
....Reynir ætlar að vera svo góður við mig að lána mér hjólið
sitt á næstunni svo að ég geti farið að hreyfa mig eithvað
almennilega....svo er alveg spurning hvort ég vakni snemma í
fyrramálið og hlaupi smá í sundi áður en ég fer í vinnuna.
En það er óskaplega gott að vera komin heim (fyrir utan
kuldann
) og gaman að hitta alla aftur 